Starfatorg
Borgir fasteignasala
Fasteignasali eða nemi
Borgir fasteignasala leitar að öflugum og drífandi fasteignasala og /eða nema til löggildingar til starfa.Borgir er framsækin fasteignasala sem hefur starfað í rúm 30 ár og byggir á sterkri fortíð og með mikla framtíðarsýn. Áhersla er lögð á góða og persónulega þjónustu.
Menntunar og hæfniskröfur:
* Löggiltur fasteignasali og/eða í námi til löggildingar
* Þjónustulund
* Jákvæðni og frumkvæði
* Samskiptahæfileikar
* Heiðarleiki og metnaður í starfi
Umsóknir berist á netfangið:
Email hidden; Javascript is required.
Kaupstaður fasteignasala
Löggiltur fasteignasali og/eða nemi til löggildingar
Kaupstaður fasteignasala óskar eftir löggiltum fasteignasala og/eða nema til löggildingar til starfa.
Vegna aukinna umsvifa og verkefna óskum við eftir aðila sem hefur áhuga á að bætast við teymi okkar. Kaupstaður er framsækin fasteignasala sem byggir á sterkri framtíðarsýn, áhersla er lögð á sjálfvirkar lausnir, góða og skilvirka þjónustu auk gagnsæi í þjónustu og söluferli.
Menntunar og hæfniskröfur:
- Löggiltur fasteignasali eða í námi til löggildingar
- Þjónustulund, jákvæðni, heiðarleiki og metnaður í starfi
- Færni í mannlegum samskiptum
Umsóknir berist á netfangið:
Email hidden; Javascript is required.
Háborg fasteignasala
Fasteignasalar og nemar
Háborg fasteignasala er ný og framsækin fasteignasala sem byggir á fagmennsku og reynslu. Við leggjum höfuðáherslu á mannauð stofunnar og störfum af alúð fyrir fjölbreyttan hóp viðskiptavina – allt frá fyrstu kaupendum til stórtækra byggingarverktaka.
Nú leitum við að drífandi og þjónustulunduðum löggiltum fasteignasölum og nemum í löggildingarnámi til þess að ganga til liðs við okkur.
Við bjóðum upp á fyrsta flokks vinnuaðstöðu á nýrri skrifstofu okkar í glerturninum að Grensásvegi 1 (6. hæð), 108 Reykjavík. Fjölbreytt verkefni í skemmtilegu og krefjandi starfsumhverfi. Háborg leggur mikið upp úr sölu nýbygginga og það eru mörg og ærin verkefni framundan.
Fullum trúnaði er heitið.
www.haborg.is
Umsóknir berist á netfangið:
Email hidden; Javascript is required.
Helgafell fasteignasala ehf.
Fasteignasali í FF óskast í samstarf
6. mars 2025
Löggiltur fasteignasali í FF óskast í samstarf
Það sem við erum að leita að:
Öflugum, lausnarmiðuðum og drífandi fasteignasala í FF sem er tilbúinn að vinna með okkur í spennandi verkefnum, sérstaklega í nýbyggingum.
Það sem við erum ekki að leita að:
Fasteignasala sem er ekki í FF og ætla að vera á fasteignasölunni í hlutastarfi.
Hvað við bjóðum:
Há söluþóknun: Þú færð það sem þú átt skilið fyrir þitt starf.
Góð aðstaða: Nútímalegt umhverfi þar sem þú getur einbeitt þér að þínum verkefnum.
Hugbúnaður: Tæknilausnir sem gera þér kleift að vinna markvisst og skilvirkt - hvar sem er.
Ferlar: Vel þróaðir ferlar sem auðvelda þér vinnuna.
Lögfræðiaðstoð: Sérfræðingur okkar sér um alla samninga svo þú getur einbeitt þér að söluferlinu.
Stöðugleiki: Flestir starfsmenn okkar hafa verið hjá okkur frá byrjun, mjög lág starfsmannavelta sem skapar traustan og góðan anda í teyminu.
Ekki er mætingarskylda á stofunni, við erum með öll tæki og tól sem gera fasteignasala kleift að vinna hvar sem er, en það er vel séð að sjá aðilann reglulega á stofunni.
.
.
. Sérstaka athygli og meðbyr fær sá aðili sem hefur hlaupið heilt maraþon, og verður líklega gerður samningur við þann aðila strax!
Ef þú hefur brennandi áhuga á fasteignasölu og vilt taka þátt í vaxandi fyrirtæki með spennandi framtíð, hafðu samband.
Að sjálfsögðu verður farið með allar umsóknir sem algjört trúnaðarmál !
Umsóknir berist á netfangið:
Runar@hfs.is
Umsóknir berist á netfangið:
Email hidden; Javascript is required.
Húsaskjól fasteignasala
Löggiltur fasteignasali
Húsaskjól fasteignasala leitar að löggiltum fasteignasölum til starfa.
Húsaskjól fasteignasala er græn fasteignasala í skýinu og ekki með viðveruskyldu á skrifstofu og því skiptir staðsetning starfsmanns ekki höfuðmáli. Aðgangur að Húsgátt, sölu- og markaðskerfi Húsaskjóls sem einfaldar alla vinnuferla og auðveldar upplýsingagjöf til viðskiptavina. Samfélagsmiðladeild sem sér um alla miðla Húsaskjóls. Samheldið teymi sem vinnur saman. Mjög góð árangurstengd laun.
Vegna aukinna verkefna á Suður- og Vesturlandi leitar Húsaskjól fasteignasala að fasteignasölum sem hafa sérþekkingu á þessum svæðum. Mikill kostur ef viðkomandi er búsettur á svæðinu.
Húsaskjól þekkt fyrir miklar tækninýjungar og öðruvísi nálganir í sölu og markaðsmálum.
Vinnutími er sveigjanlegur og stefna Húsaskjóls er að kvöld- og helgarvinna sé í lágmarki.
Umsóknum er ekki svarað í síma.
Umsóknir berist á netfangið: asdis@husaskjol.is
Umsóknir berist á netfangið:
Email hidden; Javascript is required.





