Skyldur félagsmanna
Innan Félags fasteignasala eru langflestir löggiltir fasteigna- og skipasalar á Íslandi. Að baki félagsaðild eru mjög ákveðnar skyldur um traust, trúverðugleika og ríkulegt siðferði gagnvart neytendum og geta neytendur sem eiga viðskipti við félagsmenn ávallt leitað aðstoðar FF komi upp vandamál. Á hinn bóginn er ekki vilji til að innan FF séu aðilar sem brotið hafa alvarlega gegn neytendum.
Í stærstu viðskiptum á lífsleiðinni er nauðsynlegt að neytendur geti treyst fasteignasalanum sem það fær ráðgjöf frá í einu og öllu. Þetta er grundvallaratriði og skiptir öllu gagnvart félagsmönnum FF. Félagsmenn FF fylgja í störfum sínum ströngum skyldum laga og eru að auki m.a. bundnir ströngum siðareglum auk góðra venja sem FF hefur úrskurðað að félagsmönnum beri að fylgja til að tryggja hagsmuni neytenda. Þá er félagsmönnum boðið upp á umfangsmikla og metnaðarfulla sí/ endurmenntun til þess að tryggja faglega þekkingu félagsmanna.
Sérstök neytendaþjónusta er veitt á skrifstofu FF. Sé eitthvað óljóst í störfum félagsmanna er símatími við lögmann og löggiltan fasteignasala á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 9:00 – 10:00 en þar geta þeir sem eiga fasteignaviðskipti fyrir milligöngu félagsmanna eða njóta ráðgjafar þeirra óskað aðstoðar sé eitthvað óljóst. Sú þjónusta er gjaldfrjáls neytendum.
Stjórn og skrifstofa FF
Stjórn FF er skipuð 5 löggiltum fasteignasölum og tveimur til vara
Stjórn FF á árinu 2023 – 2024 er þannig skipuð:
Monika Hjálmtýsdóttir, formaður
Aron Freyr Eiríksson, varaformaður
Herdís Valb. Hölludóttir, meðstjórnandi
Kristín Sigurey Sigurðardóttir, gjaldkeri
Ólafur Már Ólafsson, ritari
Snorri Sigurðsson, varamaður
Á skrifstofu FF starfa
Grétar Jónasson lögmaður og fasteignasali sem er framkvæmdastjóri FF og Lilja Guðmundsdóttir bókari og ritari.
Formenn FF frá upphafi
Monika Hjálmtýsdóttir, frá 2023
Hannes Steindórsson, frá 2021 til 2023
Kjartan Hallgeirsson, 2016 til 2021
Ingibjörg Þórðardóttir, 2007 til 2016
Björn Þorri Viktorsson, 2003 til 2007
Guðrún Árnadóttir, 1999 til 2003
Jón Guðmundsson, 1993 til 1999
Þórólfur Halldórsson, 1986 til 1993
Magnús Axelsson, 1984 til 1986
Saga Félags Fasteignasala
Félag fasteignasala var stofnað þann 5. júlí 1983 af 17 aðilum en tilgangur félagsins var margþættur m.a. að gangast fyrir upplýsingamiðlun til fjölmiðla og almennings um fasteignaviðskipti og vinna að tryggum viðskiptaháttum á sviði fasteignaviðskipta. Saga skipulagðrar fasteignasölu spannar um 120 ár en athafnamaðurinn Einar Benediktsson hefur stundum verið kallaður fyrsti fasteignasalinn.
Félagið hefur vaxið jafnt og þétt á liðnum árum og starfssemin aukist stöðugt. Félagið hefur haft frumkvæði og barist mjög ákveðið fyrir stöðugt bættri umgjörð og öryggi fasteignaviðskipta og unnið með fjölmörgum stjórnvöldum og Alþingi að svo hafi orðið. Umbylting hefur orðið og til en frekara öryggis fasteignaviðskipta eru félagsmenn Félags fasteignasala bundnir ströngum siðareglum.Félagið á fulltrúa í fjölmörgum nefndum þar sem málefni fasteignamarkaðarins eru uppi.
Á árinu 2008 stofnaði FF sérstakan fasteignavef fasteignir.is til að mæta mikilli gjaldtöku sem var hafin gagnvart neytendum af MBL sem hafði í krafti einokunarstöðu á fasteignaauglýsingamarkaði á vefnum öll ráð í hendi sér með ákvörðun gjaldtöku. Árangur þess að komið var á samkeppni varð neytendum fljótt heilladrjúg enda skömmu síðar fallið frá umfangsmikilli gjaldtöku gagnvart neytendum.
FF leggur mikið upp úr öryggi neytenda og hefur í samvinnu með Neytendasamtökin átt gott samstarf. Þá er Félag fasteignasala innan samtaka félaga fasteignasala á Norðurlöndum þar sem mikil vinna á sér stað til að efla störf fasteignasala.